Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 28. febrúar 2021 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rúnar Alex frá vegna hnémeiðsla
Mynd: Getty Images
Rúnar Alex Rúnarsson verður ekki í leikmannahópi Arsenal í dag sökum hnémeiðsla. Þetta kom fram í tilkynningu frá Arsenal í gær.

Þar kom einnig fram að Rob Holding er klár í slaginn þegar Arsenal heimsækir Leicester í dag.

Í tilkynningunni kemur fram að meiðsli Rúnars verði skoðuð betur og óvíst hversu alvarleg þau eru.

Rúnar er nýorðinn 26 ára og verður líklega í landsliðshópi Íslands í næsta mánuði ef hann verður heill heilsu.
Athugasemdir
banner
banner
banner