28.03.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Arnar Gunnlaugsson í KR. (Staðfest)
Arnar Gunnlaugsson skrifaði í dag undir samning við úrvalsdeildarlið KR. Arnar lék síðars með Dundee United í Skotlandi en eins og Fótbolti.net birti fréttir af fyrstir allra miðla á Íslandi hóf hann að æfa með KR fyrir skömmu. Bjarki Gunnlaugsson tvíburabróðir Arnars mun einnig leika með KR í sumar og því verða endurfundir á knattspyrnuvellinum í sumar en þeir bræður hafa ekki leikið saman í mörg ár.
