Fotbolti.net
28.03.18 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fleiri þekkt nöfn bætast við hjá Kórdrengjum (Staðfest)

Hjörtur tekur slaginn með Kórdrengjum. Hér er hann að taka viðtal við Eyjólf Sverrisson, þjálfara U21 landsliðsins.

Hjörtur tekur slaginn með Kórdrengjum. Hér er hann að taka viðtal við Eyjólf Sverrisson, þjálfara U21 landsliðsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kórdrengir í Reykjavík, sem spilar í 4. deild, heldur áfram að safna liði fyrir komandi átök í sumar.

Kórdrengir vöktu mikla athygli í byrjun mánaðarins þegar þeir sömdu við fjölmarga leikmenn með reynslu úr Pepsi-deildinni.
Í Kórdrengjum eru margir leikmenn með reynslu úr efstu deild en þeir hafa tveir bæst til viðbótar núna.

Hinn 43 ára gamli Hjörtur Júlíus Hjartarson hefur ákveðið að taka slaginn með liðinu í 4. deildinni. Hjörtur veit hvernig á að skora mörk en hann skoraði 18 mörk í 13 leikjum með Augnabliki í 4. deildinni í fyrra. Hjörtur spilaði fyrstu árin í meistaraflokki með Skallagrími en hann hefur einnig verið á mála hjá ÍA, Þrótti R. Víkingi R. og Völsungi.

Hjörtur hefur undanfarin ár starfað sem fjölmiðlamaður. Hann er með útvarpsþáttinn Akraborgina á X977 þar sem hann fer yfir íþróttir alla virka daga milli kl. 16:00-18:00.

Hinn leikmaðurinn sem er kominn yfir í Kórdrengir Júlíus Orri Óskarsson, sem er tæpum 20 árum yngri en Hjörtur.

Júlíus hefur síðastliðin þrjú sumur verið á mála hjá Vængjum Júpiters í 3. deild. Hann spilaði aðeins einn leik síðasta sumar. Júlíus hefur einnig verið á mála hjá Birninum, Fjölni og ÍR á sínum ferli.
Júlíus Orri Óskarsson.

Júlíus Orri Óskarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.