Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 28. mars 2023 20:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Van Dijk svarar gagnrýni - „Setti ég of háan standard?"
Mynd: EPA

Marco van Basten og Ruud Gullit goðsagnir í Hollandi gagnrýndu Virgil van Dijk fyrirliða landsliðsins eftir 4-0 tap gegn Frakklandi á föstudaginn.


Þeir sögðu að hann væri ekki rétti maðurinn til að bera fyrirliðabandið þar sem hann væri ekki nógu skýr.

Van Dijk svaraði gagnrýninni í samtali við Ziggo Sport.

„Allir mega hafa sína skoðun þessa dagana, það er bara svoleiðis. Setti ég of háan standard? Hvernig er það hægt? Ég var aldrei fullkominn, stöðugur er rétta orðið. Við höfum náð góðum árangri, þessir menn vita það betur en nokkur annar að fótboltamenn fara hátt upp og lágt niður," sagði Van Dijk.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner