28.06.12 - 19:37
Sebastían Sævarsson Meyer
Mladen Petric til Fulham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Fulham hefur krækt í Króatann Mladen Petric á frjálsri sölu frá Hamburger SV í Þýskalandi.
Þessi 31 árs sóknarmaður skrifaði undir eins árs samning við Lundúnarliðið en hann hafði spilað í fjögur ár í þýsku úrvalsdeildinni.

Árið 2007 gekk hann til liðs við Borussia Dortmund frá FC Basel og spilaði þar í eitt ár áður en hann hélt til Hamburger þar sem hann skoraði 38 mörk.
Petric spilaði þá undir stjórn Martin Jol sem er nú knattspyrnustjóri Fulham en Petric er spenntur fyrir ensku úrvalsdeildinni.
,,Mér líkar enska úrvalsdeildin og það hefur alltaf verið ósk mín að spila þar,\" sagði Petric.