28.07.03 - 00:00
Haraldur Hreinsson
Steven Reid til Blackburn (staðfest)
N-írski landsliðsmaðurinn, Steven Reid, gekk í kvöld í raðir enska úrvalsdeildarliðsins, Blackburn Rovers, en áður lék Reid með Millwall í ensku 1. deildinni. Kaupverðið var u.þ.b tvær og hálf milljón punda. Um tíma leit út fyrir að Portsmouth myndi ná þessum 22 ára leikmanni en loks náðu Blackburn samningum við hann í kvöld. Reid er þriðji leikmaðurinn sem Graeme Souness, knattspyrnustjóri Blackburn, kaupir í sumar. Hinir tveir eru Lorenzo Amoruso og Brett Emerton.
