Fotbolti.net
28.07.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Aleksander Hleb til BATE Borisov (Staðfest)

Aleksander Hleb til BATE Borisov (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alexander Hleb hefur gengið til liðs við BATE Borisov í heimalandi sínu Hvíta-Rússlandi.

Hleb var síðast á mála hjá Krylia Sovetov Samara en ferill hans hefur verið á mikilli niðurleið síðan hann fór frá Arsenal til Barcelona árið 2008.
Þessi 31 árs gamli miðjumaður náði aldrei að festa sig í sessi hjá Barcelona en hann fór til Stuttgart, Birmingham og Wolfsburg á láni á tíma sínum hjá félaginu.

Hleb hefur nú ákveðið að ganga til liðs við BATE en Íslendingar ættu að kannast við liðið sem hefur mætt bæði FH og Val í undankeppni Meistaradeildarinnar á undanförnum árum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.