Fotbolti.net
28.07.12 - 11:42
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Matias Fernandez kominn til Fiorentina (Staðfest)

Matias Fernandez er mikill aukaspyrnusérfræðingur.

Matias Fernandez er mikill aukaspyrnusérfræðingur.

Canon

Mynd: Getty Images

Matias Fernandez er kominn til Fiorentina og er það staðfest á opinberri vefsíðu Fiorentina í dag.

Félagsskiptin gengu snurðulaust fyrir sig og kaupverðið er talið nema um 3.1 milljón punda.
Fernandez, sem er leikmaður í landsliði Síle, kemur frá Sporting Lisbon í Portúgal. Hann kom þangað frá Villarreal fyrir þremur árum.

Fernandez er 26 ára gamall og spilar sem sóknarsinnaður miðjumaður, en hann stóðst læknisskoðun hjá Fiorentina í gær.

Fernandez verður opinberlega kynntur sem leikmaður félagsins á næstu dögum og það verður haldinn fréttamannafundur í tilefni komu hans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.