Fotbolti.net
28.07.12 - 16:36
Hafliði Breiðfjörð

Jesper Jensen til ÍA (Staðfest)

Á myndinni má sjá Þórð Þórðarson þjálfara ÍA, Jesper Jensen og Örn Gunnarsson formann Afrekssvið KFÍA .

Á myndinni má sjá Þórð Þórðarson þjálfara ÍA, Jesper Jensen og Örn Gunnarsson formann Afrekssvið KFÍA .

Canon

Mynd: Vefur ÍA

Skagamenn tilkynntu í dag að félagið hafi gert tveggja og hálfs árs samning við danska miðjumanninn Jesper Jensen en hann kemur til félagsins frá Vejle í heimalandi sínu. Jensen lék með Stjörnunni síðasta sumar og hafði rætt við þá núna í júlí en náði ekki saman.
,,Það er að mínu áliti mikill happafengur að hafa náð að landa langtímasamningi við jafn öflugan leikmann og Jesper. Hann er að stíga uppúr erfiðum meiðslum, en ég er viss um að hann eigi eftir að láta til sín taka á þessu tímabili,\" sagði Þórður Guðjónsson framkvæmdastjóri ÍA á vef félagsins í dag.

,,En fyrir okkur erum við mun frekar að horfa til langstíma með Jesper, hann mun klárlega styrka liðið okkar. Ég sá tvo leiki með Jesper er hann lék með Stjörnunni í fyrra og var hann frábær í báðum leikjunum. Þetta virðist vera heill og góður drengur, sem ætti að eiga góða samleið með öðrum leikmönnum í liðinu.\"

,,Hann er t.a.m. fyrsti útlendingur sem kemur hér á Skagann, alla vega síðan að Deanó settist hér að, sem ætlar að flytja til landsins og búa hér, þannig að hann ætlar sér að aðlagast lífinu á Skaganum og vera hluti af samfélaginu hér. Við höfum einungis heyrt og séð góði hluti af honum og eru þjálfararnir Þórður og Deanó spenntir fyrir því að fá hann í hópinn.\"

Heimild: Vefur ÍA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.