Fotbolti.net
28.07.12 - 23:17
Hafliði Breiðfjörð

KR lánar Egil Jónsson til Selfoss (Staðfest)

Egill Jónsson er kominn til liðs við Selfoss.

Egill Jónsson er kominn til liðs við Selfoss.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR hefur lánað miðjumanninn Egil Jónsson til Selfoss. Egill fær leikheimild með Selfoss liðinu á miðnætti og getur því spilað með liðinu gegn Val í Pepsi-deildinni á morgun.
Selfyssingar hafa verið á útopnu að styrkja leikmannahóp sinn í vikunni og síðastliðinn sólarhring hafa þeir auk Egils fengið norska bakvörðinn Markus Hermo frá Byåsen og miðvörðinn Hafþór Þrastarson frá FH á láni.

KR hefur verið að styrkja sig í félagaskiptaglugganum og eftir að hafa fengið Gary Martin frá ÍA fengu þeir miðjumanninn Jónas Guðna Sævarsson frá Svíþjóð og þar með var ljóst að Egill féll niður goggunarröðina í vesturbænum.

Egill er 21 árs gamall miðjumaður sem hefur spilað sjö leiki fyrir lið KR í Pepsi-deildinni í sumar auk eins leiks í Borgunarbikarnum. Hann verður nú á láni hjá Selfoss út tímabilið.

Hann hefur leikið einn leik með U21 árs landsliði Íslands, gegn Aserbaídsjan í desember síðastliðnum og á einnig að baki tvo U17 leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.