28.07.18 - 18:16
Brynjar Ingi Erluson
Geoffrey Castillion lánaður í Víking R. (Staðfest)

Geoffrey Castillion í leik með FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Geoffrey Castillion í leik með FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hollenski framherjinn Geoffrey Castillion mun spila með Víking R. út tímabilið á láni frá FH. Þetta kom fram í tilkynningu frá Víkingum í dag.
Castillion, sem er 27 ára, þekkir vel til hjá Víking en hann kom til félagsins fyrir síðasta tímabil og gerði þá 11 mörk í 16 leikjum í Pepsi-deildinni.
Eftir tímabilið samdi hann við FH en honum hefur alls ekki tekist að finna sig í sumar og aðeins skoraði eitt mark í tíu leikjum í deildinni.
Hann er nú kominn aftur til Víkings en hann verður þar á láni út tímabilið.
Hann verður kominn með leikheimild er Víkingur mætir Stjörnunni á sunnudaginn klukkan 19:15 en leikurinn fer fram í Víkinni.

Í leik með Víkingum í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson