Fotbolti.net
28.07.18 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Lampard fær markahæsta mann C-deildarinnar (Staðfest)

Frank Lampard ásamt Jack Marriott

Frank Lampard ásamt Jack Marriott

Canon

Mynd: Heimasíða Derby County

Enska B-deildarliðið Derby County er búið að tryggja sér þjónustu enska framherjans Jack Marriott frá Peterborough.
Marriott, sem er 24 ára gamall, var hreint út sagt ótrúlegur með Peterborough á síðustu leiktíð en hann gerði 27 mörk í 44 leikjum og var markahæsti maður C-deildarinnar.

Hann var eftirsóttur af mörgum liðum í B-deildinni en Derby County tókst að ganga frá kaupum á honum.

Hann var heldur ódýr en hann kostaði Derby aðeins 2,5 milljónir punda.

Frank Lampard er knattspyrnustjóri Derby en hann tók við liðinu fyrir komandi tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.