28.07.18 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Osorio hættur með Mexíkó (Staðfest)

Juan Carlos Osorio.

Mynd: Getty Images

Juan Carlos Osorio.

Mynd: Getty Images
Mexíkó þarf að leita sér að nýjum landsliðsþjálfara en Kólumbíumaðurinn Juan Carlos Osorio er búinn að taka ákvörðun um að segja starfi sínu lausu.
Osorio er búinn að stýra Mexíkó síðustu þrjú árin.
Hinn 56 ára gamli Osorio stýrði Mexíkó á HM í Rússlandi og kom liðinu í 16-liða úrslit þar sem tap við Brasilíu var niðurstaðan.
Osorio vann 33 af 55 leikjum sínum við stjórnvölinn hjá Mexíkó en hann hafnaði öllum samningstilboðum um að halda áfram um liðið.
Mexíkó þarf því að ráða nýjan landsliðsþjálfara eins og nokkrar aðrar þjóðir, þar á meðal Ísland.

After a deep analysis and discussion, Juan Carlos Osorio has decided to step down of the head coach charge.
— Mexican National Team (@miseleccionmxEN) July 27, 2018
We are thankful for the passion and commitment you gave every match. #PasiónyOrgullo 🇲🇽 pic.twitter.com/lm48EdKuCb