Fotbolti.net
28.07.18 - 06:00
Arnar Daði Arnarsson

Valtýr Már kominn í Gróttu (Staðfest)

Valtýr í leik með KR á undirbúningstímabilinu.

Valtýr í leik með KR á undirbúningstímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hinn tvítugi Valtýr Már Michaelsson hefur gengið í raðir Gróttu í 2. deildinni.

Valtýr kemur til Gróttu frá KR en hann var fyrri hluta sumarsins á láni hjá KV í 3. deildinni.
Hann lék níu leiki með KV í 3. deildinni í sumar og skoraði í þeim leikjum eitt mark. Hann á að baki fjóra leiki með KR í Pepsi-deildinni, þrjá leiki sumarið 2016 og einn leik á síðasta tímabili.

Eftir erfiða byrjun á tímabilinu er Grótta komin í hörkubaráttu um að komast upp úr 2. deildinni. Liðið er sem stendur í öðru sæti en það gerði markalaust jafntefli gegn Þrótti Vogum á fimmtudag.

Næsti leikur Gróttu er gegn Kára á þriðjudagskvöld og líklegt að Valtýr spili þann leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.