Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 28. júlí 2022 15:00
Elvar Geir Magnússon
Tavares fer á lán til Marseille
Mynd: EPA
Portúgalski bakvörðurinn Nuno Tavares er á leið til franska liðsins Marseille á láni frá Arsenal.

Í síðustu viku virtist Tavares vera á leið til Atalanta á Ítalíu en hann fer í læknisskoðun hjá Marseille á morgun.

Íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir að engin klásúla sé í samkomulaginu varðandi möguleg framtíðarkaup.

Arsenal keypti Tavares, sem er 22 ára, frá Benfica fyrir 8 milljónir punda á síðasta ári en hann kom við sögu í 22 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

uno Tavares’ set to join Olympique Marseille, medical tests on Friday. Arsenal and OM have full agreement on loan deal, no buy option included. 🚨🔵 #OM

Final check to the contracts in the afternoon then it will be signed. Here we go. #AFC




Enski boltinn - Arsenal upphitun með Skagafrændum
Athugasemdir
banner
banner
banner