28.07.26 - 22:12
Ívan Guðjón Baldursson
Everton og Crystal Palace töpuðu - Jafnt hjá Fulham

Mynd: EPA

Mynd: Crystal Palace

Mynd: Lens

Mynd: EPA
Það var mikið um æfingaleiki víða í Evrópu í dag og komu nokkur ensk úrvalsdeildarfélög við sögu.
Everton tapaði gegn Stoke City þrátt fyrir að mæta til leiks með nokkuð sterkt byrjunarlið. Lokatölur urðu 1-0 þökk sé marki frá 19 ára gömlum Gabriel Kelly.
Byrjunarlið Everton: Travers, Mykolenko, Tarkowski, Keane, George, Röhl, Hackney, Armstrong, Dewsbury-Hall, Dibling, Beto
Crystal Palace steinlá þá gegn fyrrum lærlingum Pierre Sage í liði Lens í dag og var Odsonne Edouard aðal maðurinn. Edouard er fyrrum leikmaður Palace og skoraði hann tvennu gegn sínum gömlu liðsfélögum. Svartfellingurinn efnilegi Andrija Bulatovic setti þriðja og síðasta mark leiksins á 22. mínútu, lokatölur 3-0.
Byrjunarlið Palace: Benitez, Walker-Smith, Canvot, Cardines, Mitchell, Doucoure, Hughes, Sosa, Rak-Sakyi, Johnson, Nketiah
Liðin mættust á Como Cup æfingamótinu þar sem hver leikur tekur aðeins einn hálfleik, eða 45 mínútur. Famalicao er einnig með á mótinu og gerði markalaust jafntefli við Palace í dag.
Palace hafði betur eftir vítaspyrnukeppni og endar því riðlakeppnina með tvö stig. Þrjú stig fást fyrir sigur í venjulegum leiktíma og tvö stig fást fyrir sigur í vítaspyrnukeppni.
Þetta þýðir að Palace endar í neðsta sæti riðilsins og fær að spila úrslitaleik um 5. sæti Como Cup seinna í vikunni. Palace mun þar mæta liðinu sem endar í neðsta sæti í hinum riðlinum, sem inniheldur Villarreal, Como og Al-Ula.
Byrjunarlið Palace: Matthews, Adaramola, Benamar, Cardines, Devenny, Darkes-Thomas, Esse, Jemide, King, Matheus Franca, Ozoh
Fulham gerði jafntefli við sádi-arabíska stórveldið Al-Ahli. Ricardo Mathias náði forystunni fyrir Al-Ahli en Ryan Sessegnon jafnaði metin fyrir leikhlé og tókst hvorugu liði að gera sigurmark í síðari hálfleik.
Enzo Millot, Matheus Goncalves, Merih Demiral, Matteo Dams og Valentin Atangana voru meðal byrjunarliðsmanna Al-Ahli.
Byrjunarlið Fulham: Leno, Tete, Andersen, Bassey, Sessegnon, Reed, Smith Rowe, Iwobi, King, Zepa, Muniz
Stoke 1 - 0 Everton
1-0 Gabriel Kelly ('59)
Crystal Palace 0 - 3 Lens
0-1 Odsonne Edouard ('10)
0-2 Odsonne Edouard ('21)
0-3 Andrija Bulatovic ('22)
Crystal Palace 0 - 0 Famalicao
4-5 í vítaspyrnukeppni
Lens 0 - 0 Famalicao
7-8 í vítaspyrnukeppni
Al-Ahli 1 - 1 Fulham
1-0 Ricardo Mathias ('20)
1-1 Ryan Sessegnon ('40)