Fotbolti.net
28.07.26 - 22:43
Ívan Guðjón Baldursson

Norrköping á toppinn - Sigurður Bjartur byrjaði gegn Al-Nassr

Norrköping á toppinn - Sigurður Bjartur byrjaði gegn Al-Nassr
Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins í Evrópu þar sem kantmaðurinn Ísak Andri Sigurgeirsson var í byrjunarliðinu í sigri Norrköping í næstefstu deild í Svíþjóð.
Norrköping féll óvænt úr Allsvenskan í fyrra og ætlar sér beint aftur upp. Ísak Andri og félagar eru á toppi Superettan með 32 stig eftir 16 umferðir, en það eru aðeins tvö stig sem skilja þrjú efstu liðin að.

Þá fóru nokkrir æfingaleikir fram þar sem Sigurður Bjartur Hallsson var í byrjunarliði Mérida AD sem tapaði gegn sádi-arabíska stórveldinu Al-Nassr á meðan Nökkvi Þeyr Þórisson var í byrjunarliði Sparta Rotterdam sem gerði jafntefli við Asteras Tripolis.

Stockport County lagði þá Oldham Athletic að velli og skóp Jong AZ auðveldan sigur á Quick Boys.

Landskrona 0 - 1 Norrköping

Merida 0 - 2 Al-Nassr

Sparta Rotterdam 1 - 1 Asteras Tripolis

Oldham 0 - 1 Stockport County

Quick Boys 1 - 4 Jong AZ Alkmaar
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.