Fotbolti.net
28.07.26 - 23:40
Ívan Guðjón Baldursson

Perri verður seldur

Perri verður seldur
Canon

Mynd: EPA

Leeds United er að nálgast samkomulag um kaupverð fyrir James Trafford, varamarkvörð Manchester City, og verður Lucas Perri sendur til Torino í kjölfarið.
Trafford á leið til Leeds
TENGT EFNI

Trafford á leið til Leeds

Torino er búið að ná samkomulagi við Leeds um að fá brasilíska markvörðinn til sín á lánssamningi með kaupmöguleika.

Leeds borgaði 16 milljónir evra til að festa kaup á Perri úr röðum Lyon í fyrrasumar. 2 milljónir gátu bæst við í formi árangurstengdra aukagreiðslna og þar að auki heldur Lyon 10% af hagnaði af endursölu markmannsins.

Perri verður því þriðji markvörðurinn sem yfirgefur raðir Leeds í sumar eftir að Karl Darlow skipti til Manchester United og Illan Meslier til Arsenal.

Torino, sem endaði í 12. sæti í Serie A á síðustu leiktíð, hefur verið að skoða leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni í tilraunum sínum til að styrkja leikmannahópinn fyrir komandi átök.
Perri verður seldur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.