28.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Elber til Lyon. (Staðfest)

Elber er farinn til Lyon.


Elber er farinn til Lyon.

Olympique Lyon hefur keypt Brasilíska sóknarmanninn Giovane Elber frá Bayern Munchen fyrir 4,2 milljónir evra. Elber sem að kemst ekki lengur í byrjunarlið Bayern eftir komu Roy Makaay skrifaði undir þriggja ára samning við Lyon. Talið var að Elber væri á leið til Monaco en Lyon hafði betur í kapphlaupinu um kappann. Elber hefur skorað 92 mörk í 169 Bundesligu leikjum fyrir Bayern Munchen og VfB Stuttgart, og hann hefur einnig skorað 24 mörk 65 Meistaradeildarleikjum. Elber mun væntanlega spila sinn fyrsta leik gegn EA Guingamp á laugardaginn í Frönsku deildinni en hann mun einnig styrkja Lyon mikið í Meistaradeildinni.
