Steini: Höfðum ekkert við Fanndísi að gera
Auglýsing

Steina fannst vera skjálfti í sínu liði framan af en er ánægður með hvernig liðið kláraði leikinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

“Já, mjög ánægður með seinni hálfleikinn. Fyrri hálfleikurinn var svona rólegur og við fórum bara mjög agað inní hann og ætluðum ekkert að fara að flýta okkur að því að koma okkur í góðar stöður heldur ætluðum við bara að þreifa á þeim og finna opnanir. Þannig að við gerðum það fannst mér, ég er bara sáttur við það. Það var smá skjálfti í okkur en svona í seinni hálfleik þá bara komum við hérna inná völlinn og yfirspiluðum þær og keyrðum yfir þær raunverulega. Þannig að ég var bara mjög ánægður með þennan leik. Við gerðum raunverulega bara eins og við stefndum að, agaðan og skipulagðan, og svo bara halda tempói og keyra yfir þær,” sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, eftir 4-0 sigur á Grindavík í dag.
Var verið að fylgjast með gangi mála fyrir norðan á bekknum?
\"Jájá auðvitað vissum við alltaf hvernig staðan var og auðvitað var maður farinn að gæla við eitthvað skemmtilegt. En þetta er bara partur af þessu en ég vil óska Þór/KA til hamingju með titilinn. Þær eru verðugir meistarar. Þær hafa verið besta liðið allt sumarið og haldið þetta bara vel út og spilað bara virkilega flotta leiki.\"
Sérðu fram á að halda áfram með liðið?
“Já ég reikna með því. Ekki nema ég verði rekinn fyrir að vera í 2. sæti, ég veit það ekki. Það kemur í ljós. Ég svo sem er með samning áfram þannig að ég geri ráð fyrir því að verða bara áfram.”
Mikið var rætt um það að Breiðablik hefði leyft Fanndísi og Berglindi að yfirgefa félagið á síðustu vikum, stóð aldrei til að koma í veg fyrir að þær færu?
“Nei í sjálfu sér ekki. Þetta eru alltaf flókin mál. Fanndís þurfti að fara, þá var það félagsskiptaglugginn. Og þegar Fanndís fer reyndar þá munaði einhverjum 8 stigum, minnir mig, ef ég man þetta rétt. Við svo sem vorum ekkert að horfa í það. Berglindar mál var náttúrulega löngu búið að ganga frá því, það var ekki gengið frá því daginn eftir Stjörnuleikinn heldur var löngu búið að ganga frá því. Þetta er alltaf spurning og við töldum okkur bara vera með nógu gott lið til að vinna þannig að við vorum svo sem ekkert að stressa okkur á því. Við unnum náttúrulega alla leiki eftir að Fanndís fór og það sýnir náttúrulega það að við höfðum ekkert við hana að gera þannig að þetta var bara í góðu lagi.\"
Nánar er rætt við Steina í viðtalinu í spilaranum hér fyrir ofan.