Bellingham bætti markamet Englands á HM

Mynd: EPA

Mynd: Twitter

Mynd: EPA
Jude Bellingham tókst að bæta markamet enska landsliðsins þegar hann kom inn af bekknum og skoraði síðasta markið í 6-4 sigri gegn Frakklandi í bronsleiknum fyrr í kvöld.
Sjáðu markið.
Bellingham skoraði þar með 7 mörk í 8 leikjum og er orðinn markahæsti leikmaður í sögu Englands á einu og sama heimsmeistaramótinu.
Hann bætir met sem Gary Lineker setti þegar hann var markahæstur á HM 1986 með 6 mörk í 5 leikjum.
Harry Kane fellur því niður í þriðja sæti með 6 mörk á einu móti. Hann stóð uppi sem markakóngur með sex mörk á HM 2018 í Rússlandi og skoraði aftur sex mörk í ár.

TENGT EFNI
HM: Þrenna frá Saka tryggði bronsið

Mynd: Twitter