Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 28. september 2020 06:00
Aksentije Milisic
Aston Villa að sigra í baráttunni um Loftus-Cheek
Mynd: Getty Images
Ruben Loftus-Cheek er á leið til Aston Villa á láni en Southampton og West Ham höfðu einnig áhuga á þessum 24 ára gamla leikmanni.

Dean Smith, stjóri Aston Villa, vill styrkja miðjuna áður en félagsskiptaglugginn lokar þann 5. október næstkomandi.

Aston Villa hefur eytt 85 milljónum punda í sumar og er nú félagið einungis að leita að leikmönnum sem þeir geta fengið á láni. Þar hefur liðið reynt að fá Loftus-Cheek og Ross Barkley frá Chelsea.

Samkvæmt reglum úrvalsdeildarinnar þá geta tvö lið einungis lánað einn leikmann á milli sín og því virðist það vera Loftus-Cheek sem ætlar að færa sig um set til Birmingham borgar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner