Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 28. september 2020 08:00
Aksentije Milisic
„Bale er stjórstjarna sem mun hjálpa Spurs að ná topp fjórum"
Mynd: Getty Images
Graeme Souness, sérfræðingur hjá Sky Sports, hefur mikla trú á Gareth Bale og segir hann að Tottenham hafi nælt sér í stjórstjörnu fyrir tímabilið.

Bale sneri aftur til Tottenham eftir dvöl sína hjá Real Madrid þar sem hann vann marga titla í Madrid.

„Þessi maður er stjórstjarna. Ég mun aldrei skila það hvers vegna hann var ekki elskaður hjá Real Madrid," sagði Souness.

„Hann getur gert allt. Hann er skapandi, hann getur skorað mörk og hann er í frábæru líkamlegu formi. Þetta er ekki sjálfselskur leikmaður og hann spilar fyrir liðið. Með komu Bale mun Tottenham eiga mikla möguleika á því að ná einu af efstu fjóru sætunum."

Bale gekk til liðs við Real Madrid frá Tottenham árið 2013 en er núna mættur aftur á lánssamningi frá spænsku risunum.


Athugasemdir
banner
banner
banner