Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 28. nóvember 2020 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Orri Steinn þakkaði traustið - Skoraði tvö með U19 liðinu
Orri Steinn í unglingalandsleik.
Orri Steinn í unglingalandsleik.
Mynd: Hulda Margrét
Efnilegi sóknarmaðurinn Orri Steinn Óskarsson spilaði í dag sinn fyrsta leik með U19 liði FC Kaupmannahafnar.

Orri, sem er aðeins 16 ára gamall, átti mjög flotta frumraun. Hann skoraði tvö mörk í 3-1 sigri gegn SönderjyskE.

Orri Steinn er sóknarleikmaður sem kom fyrst fram á sjónarsviðið þegar hann skoraði tvö mörk gegn Hetti í 2. deildinni árið 2018, þá aðeins 13 ára.

Orri hjálpaði Gróttu að vinna Inkasso-deildina áður en hann fór í atvinnumennsku í fyrra. Hann lék 12 leiki og skoraði eitt mark fyrir Gróttu í næst efstu deild.

Hann er búinn að skora vel fyrir U17 liði FCK og fékk í dag tækifæri með U19 liðinu. Þessi efnilegi leikmaður þakkaði fyrir traustið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner