Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 28. nóvember 2022 21:24
Elvar Geir Magnússon
Höddi Magg: Eins og Cavani og Nunez hafi ekki spilað fótbolta áður
Mynd: Getty Images
„Það er mikil vonbrigði með spilamennsku Úrúgvæ," segir Hörður Magnússon sem hefur lýst báðum leikjum úrúgvæska landsliðsins á HM,

Þrátt fyrir að vera með þekkt nöfn í sóknarleiknum hefur Úrúgvæ ekki skorað mark. Liðið tapaði fyrir Portúgal 2-0 í kvöld og er með eitt stig.

„Ég hef ekkert á móti Úrúgvæjum, ég ber mikla virðingu fyrir þeim sem fótboltaþjóð. En ef þeir ætla að spila svona líka í þriðja leiknum þá vona ég að þeir fari ekki áfram. Ég er búinn að lýsa báðum leikjunum með þeim og þeir hafa spilað vel í 15 mínútur," segir Hörður.

„Rodrigo Bentancur hefur klárlega verið besti maður liðsins en það er eins og (Edinson) Cavani og (Darwin) Nunez hafi ekki spilað fótbolta áður. Suarez kom of seint inná að mínu mati og það þurftu fleiri en Bentancur að reyna að draga þetta lið áfram."

Úrúgvæ mun mæta Gana í lokaumferð riðilsins og þarf nauðsynlega að vinna til að eiga möguleika á að komast áfram.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner