Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 29. janúar 2023 16:10
Aksentije Milisic
Anthony Gordon til Newcastle (Staðfest)
Mynd: Getty Images

Hinn 22 ára gamli Anthony Gordon er búinn að skrifa undir samning sem nýr leikmaður Newcastle United en þetta staðfesti félagið.


Gordon kemur frá Everton þar sem hann er uppalinn en hann gerði allt sem í hans valdi stóð til að komast burt. Hann mætti ekki á æfingar og bað um sölu.

Newcastle borgar 40 milljónir punda fyrir Gordon auk fimm milljónir punda sem koma inn sem aukagreiðslur.

Chelsea reyndi að kaupa Gordon síðasta sumar en þá hafnaði Everton tilboðum liðsins.

Gordon skrifar undir langtímasamning við Newcastle en liðið er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar og þá er það komið í undanúrslit í deildabikarnum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner