Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. janúar 2023 11:00
Aksentije Milisic
Malo Gusto til Chelsea (Staðfest)
Gusto.
Gusto.
Mynd: Getty Images

Hinn 19 ára gamli Malo Gusto er búinn að skrifa undir samning við Chelsea en það var staðfest rétt í þessu.


Þessi efnilegi bakvörður stóðst læknisskoðun og hefur krotað undir sjö og hálfs árs samning við Chelsea. Hann verður áfram hjá Lyon þangað til í sumar.

Chelsea borgar 30 milljónir evra fyrir leikmanninn auk bónusgreiðsla.

Chelsea vildi fá Gusto strax frá Lyon en forseti félagsins sagði að það væri ekki séns. Hann gæti ekki gert þjálfaranum sínum, Laurent Blanc, það því hann hafði gefið honum loforð.

Gusto hefur spilað 47 leiki fyrir Lyon og þá á hann að baki leiki fyrir öll yngri landslið Frakklands.


Athugasemdir
banner
banner