Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. janúar 2023 11:20
Aksentije Milisic
Roma Ultras birtir stóran borða fyrir utan Colosseum til Zaniolo
Stuðningsmenn Roma.
Stuðningsmenn Roma.
Mynd: EPA
Á góðri stundu.
Á góðri stundu.
Mynd: Getty Images

Stuðningsmenn AS Roma á Ítalíu eru ekkert lamb að leika sér við en þeir eru brjálaðir út í hegðun Nicolo Zaniolo. 

Leikmaðurinn neitar að æfa og spila með liðinu en ekki hefur tekist að selja hann í glugganum.


Roma gaf leikmanninum tækifæri þegar hann var ungur og stóð þétt við bakið á honum þegar hann sleit krossbönd í tvígang.

Hann hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnunum þangað til á þessari leiktíð en hann hefur verið áhugalaus og spilað illa, sérstaklega á nýju ári.

„Hann er búinn að segja við mig, félagið og liðsfélagana að hann vill ekki vera hérna lengur. Hann segist ekki vilja spila eða æfa meira með liðinu. Þess vegna segi ég því miður. Ég vil ekki segja meira um þetta mál en Nicoló verður ekki með hópnum í næsta leik," sagði Jose um Ítalann í gær.

Nú hafa Roma Ultras tekið sig til og sett stóran borða hjá Colosseum og þar eru skýr skilaboð til Zaniolo.

„“Zaniolo traitor, and a piece of s*** without honor.”

Fljótt að breytast í boltanum en Zaniolo var hetja í Rómarborg í fyrra þegar hann tryggði sigurinn í úrslitaleiknum í Sambandsdeildinni í Tirana.

Roma var búið að samþykkja tilboð Bournemouth í leikmanninn en Zaniolo lagði það ekki einu sinni á sig að fara og hitta forráðarmenn Bournemouth sem voru mættir til Róm.


Athugasemdir
banner
banner
banner