Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   sun 29. janúar 2023 12:00
Aksentije Milisic
Tete til Leicester City (Staðfest)
Mynd: KA

Mateus Tete er genginn til liðs við Leicester City en þetta staðfesti félagið rétt í þessu.


Tete kemur til Leicester úr röðum Shakhtar Donetsk en hann hefur verið á láni hjá Lyon.

Tete er Brassi sem spilar á kantinum en hann skrifar undir stuttan samning við Refina sem gildir til júní mánaðar.

Ef Brendan Rodgers vill kaupa þennan 22 ára gamla leikmann þá verður Leicester að hefja viðræður við Shakthar næsta sumar.

Leikmaðurinn ætti því að vera klár þegar Leicester mætir Aston Villa í næstu viku. Lyon gat keypt leikmanninn frá Shakhtar en ákvað að gera það ekki.


Athugasemdir
banner
banner
banner