Rudi Garcia, þjálfari Al-Nassr í Sádí-Arabíu, segir að Cristiano Ronaldo muni aftur spila í Evrópu áður en hann leggur skónna á hilluna.
Ronaldo gekk í raðir Al-Nassr í síðasta mánuði en strax eru sögusagnir farnar á kreik um framtíð hans.
Ronaldo, sem hefur unnið Gullknöttinn fimm sinnum, mun spila aftur í Evrópu en svo segir þjálfari hans.
„Ronaldo er einn besti leikmaður heims og jákvæð viðbót í hópinn okkar," sagði Garcia.
„Hann er einn besti leikmaður heims. Hans ferli mun ekki ljúka hér hjá Al-Nassr. Hann mun fara aftur til Evrópu."
Þetta sagði Garcia eftir 3-1 tapleikinn gegn Al Ittihad en Ronaldo hefur ekki tekist að skora í fyrstu tveimur keppnisleikjum sínum hjá liðinu.
Hann setti tvö mörk í æfingaleik gegn PSG á dögunum.
Athugasemdir