Sergio Aguero mun segja skilið við Manchester City í sumar og kveður félagið eftir tíu frábær ár í Manchester.
Aguero er goðsögn hjá Man City en hann fagnaði sigri í úrvalsdeildinni fjórum sinnum og vann deildabikarinn í fimm skipti.
Í kvöld var það staðfest að þetta væri síðasta tímabil Aguero sem verður samningslaus í sumar.
Það var einnig staðfest að Aguero mun fá styttu fyrir utan Etihad völlinn ásamt þeim Vincent Kompany og David Silva.
Kompany og Silva eru einnig í guðatölu í bláum hluta Manchester og unnu til sömu verðlauna og Aguero.
Aguero er einnig markahæsti leikmaður í sögu Man City.
Athugasemdir