Fotbolti.net
29.03.26 - 13:57
Brynjar Ingi Erluson

Draumavika hjá Lindu Líf - Hafrún Rakel á skotskónum

Á dögunum var Linda Líf kölluð í A-landsliðshópinn í fyrsta sinn og í dag skoraði hún og lagði upp fyrir Kristianstad

Á dögunum var Linda Líf kölluð í A-landsliðshópinn í fyrsta sinn og í dag skoraði hún og lagði upp fyrir Kristianstad

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Linda Líf Boama er að eiga einhverja bestu viku sem hún hefur átt á ferlinum, en hún skoraði og lagði upp í 3-2 sigri Kristianstad á Piteå í dag.
Steini: Linda Líf er áhugaverður leikmaður
TENGT EFNI

Steini: Linda Líf er áhugaverður leikmaður

Framherjinn var á dögunum valin í A-landslið kvenna í fyrsta sinn og hélt upp á það með stjörnuframmistöðu í sænsku deildinni.

Linda lagði upp fyrsta mark Kristianstad sem kom liðinu í 1-0 áður en heimakonur í Piteå jöfnuðu metin rúmum tuttugu mínútum síðar.

Undir lok fyrri hálfleiks skoraði Linda síðan annað mark Kristianstad sem var hennar fyrsta deildarmark með liðinu og þriðja markið í öllum keppnum síðan hún kom frá Víkingi.

Alexandra Jóhannsdóttir var einnig í byrjunarliði Kristianstad en Elísa Lana Sigurjónsdóttir kom inn af bekknum. Kristianstad mætir næst Djurgården, en María Catharina Ólafsdóttir Gros leikur með liðinu.

Hildur Antonsdóttir byrjaði hjá Madrid CFF sem tapaði fyrir Tenerife, 2-0, í Liga F á Spáni. Madrid er í 10. sæti með 31 stig.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir gerði þá annað mark Bröndby í 3-0 sigri á Kolding. Þetta var sjöunda markið sem hún skorar á þessu tímabili en Bröndby er í 3. sæti meistarariðilsins í dönsku úrvalsdeildinni með 31 stig, sex stigum frá toppnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.