Fotbolti.net
29.03.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Draumur að spila með Þór í efstu deild - „Ég og FH vorum sammála"

Draumur að spila með Þór í efstu deild - „Ég og FH vorum sammála"
Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Bjarni Guðjón Brynjólfsson gekk til liðs við Þórs á láni frá FH í vetur. Hann er uppalinn hjá Þór en gekk til liðs við Val fyrir tímabilið 2024 og fór þaðan til FH.
Sjáðu stórglæsilegt mark Bjarna Guðjóns - „Nokkur orð? Bara sturlað!"
TENGT EFNI

Sjáðu stórglæsilegt mark Bjarna Guðjóns - „Nokkur orð? Bara sturlað!"

Bjarni skoraði stórglæsilegt mark þegar Þór vann KA í úrslitaleik Kjarnafæðimótsins á föstudaginn. Fótbolti.net ræddi við hann um endurkomuna í Þór.

Ertu spenntur að spila með Þór í efstu deild?

„Þetta er geggjað, er mjög spenntur fyrir sumrinu. Þetta verður erfitt, við þurfum að leggja allt í þetta. Þetta er draumurinn," sagði Bjarni Guðjón.

„Þetta gerðist hratt þegar þetta fór af stað. Ég og FH vorum sammála um að ég fengi að spila meira."

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, var einnig spurður út í Bjarna.

„Hann er svo sterkur og með gott fyrsta skref. Mér finnst hann vera koma mjög hungraður til okkar. Það er gríðarlega fallegt að sjá það," sagði Siggi.

Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það

Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.