Fotbolti.net
29.03.26 - 17:48
Stefán Marteinn Ólafsson

Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá

Auglýsing
Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga

Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar eru Meistarar Meistaranna eftir öflugan og öruggan 4-0 sigur á Vestra í Víkinni í dag. Leikur sem var aldrei í neinni hættu. 

Lestu um leikinn: Víkingur R. 4 - 0 Vestri

„Flottur leikur og ég var virkilega sáttur með frammistöðu minna manna" sagði Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga eftir sigurinn í dag. 

„Menn voru bara beittir fannst mér og þetta er góður leikur og góður undirbúningur fyrir það sem koma skal" 

„Við eigum hörku leik á móti Fram núna í bikarnum og við töluðum um það að við vildum bara ná góðri frammistöðu upp á að fá svona momentum í gang hjá okkur og mér finnst við hafa gert það í dag" 

Það vakti óneitanlega athygli að sjá nafn Sveins Margeirs Haukssonar á bekk Víkinga í dag en hann hefur þegar verið tilkynntur hjá KA á lánssamning út þetta keppnistímabil.

„Hann þarf mínútur, það er ástæðan fyrir því að hann sé að fara á lán og hann þarf bara að fá fleiri mínútur. Það var bara svona pælingin á bakvið það" 

„Hann er búin að vinna virkilega hart að því að koma til baka í gegnum mjög erfið meiðsli sem hafa tekið mikið á og mér fannst bara fínt tækifæri að gefa honum mínútur hérna í dag bara upp á framtíðina hjá honum. Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá" 

Það er ákvæði í lánssamningi Sveins Margeirs fyrir Víkinga að kalla hann til baka í sumarglugganum.

„Já, það er bara um mitt sumar ef við teljum okkur þurfa á hans kröftum í sumar þá getum við kallað hann til baka" sagði Sölvi Geir Ottesen.

Nánar er rætt við Sölva Geir í spilaranum fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.