Fotbolti.net
29.03.26 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tudor fékk enga greiðslu - Tottenham reynir að sannfæra De Zerbi

Tudor fékk enga greiðslu - Tottenham reynir að sannfæra De Zerbi
Canon

Mynd: EPA

Igor Tudor var látinn taka pokann sinn í dag sem stjóri Tottenham eftir aðeins rúman mánuð í starfi. Breski fjölmiðlamaðurinn Ben Jacobs segir frá því að Tudor hafi ekki fengið neina uppsagnargreiðslu frá félaginu.

Roberto de Zerbi, fyrrum stjóri Brighton og Marseille, hefur verið sterklega orðaður við Tottenham.
Tudor rekinn frá Tottenham (Staðfest)
TENGT EFNI

Tudor rekinn frá Tottenham (Staðfest)

Talið er að hann sé ekki tilbúinn til að taka við liðinu eins og er en hann vill bíða og sjá hvort Tottenham takist að halda sér uppi í úrvalsdeildinni, liðið er aðeins stigi frá fallsæti.

Jacobs segir hins vegar að Tottenham sé að reyna allt til að sannfæra De Zerbi um að taka strax við liðinu. Hann var efstur á óskalista félagsins fyrir sumarið en félagið íhugaði einnig að ráða Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna og fyrrum stjóri Tottenham.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.