Fotbolti.net
29.03.26 - 16:36
Brynjar Ingi Erluson

Tudor í fjórða sæti á óeftirsóknarverðum lista

Tudor í fjórða sæti á óeftirsóknarverðum lista
Canon

Mynd: EPA

Igor Tudor var látinn taka poka sinn hjá Tottenham eftir aðeins 44 daga í starfi en tíðindin komu honum á óeftirsóknarverðan lista.
Tudor rekinn frá Tottenham (Staðfest)
TENGT EFNI

Tudor rekinn frá Tottenham (Staðfest)

Tudor tók við Tottenham um miðjan febrúar eftir að Thomas Frank var rekinn.

Hann stýrði liðinu í aðeins sjö leikjum og náði í einn sigur, gegn Atlético Madríd í heimaleiknum í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, en Tottenham datt þrátt fyrir það úr leik.

Í deildinni náði hann í eitt stig gegn Englandsmeisturum Liverpool en tapaði hinum fjórum.

Tottenham greindi frá því samkomulagi um að Tudor myndi láta tafarlaust af störfum og var hann því aðein stjóri félagsins í 44 daga sem gerir þetta að einni stystu stjórnartíð í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Sam Allardyce á metið en hann var aðeins 30 daga í starfi hjá Leeds tímabilið 2022-2023. Ange Postecoglou var í 39 daga hjá Nottingham Forest á þessari leiktíð, Les Reed í 40 daga hjá Charlton tímabilið 2006-2007 og svo kemur Tudor í fjórða sætinu og Javi Gracia í fimmta með aðeins 69 daga hjá Leeds á sama tímabili og Allardyce stýrði liðinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.