Víkingur samþykkti tilboð frá sænska liðinu Kalmar í Valdimar Þór Ingimundarson í vetur en hann hafnaði samningstilboði frá félaginu.
Valdimar var valinn besti leikmaður Bestu deildarinnar á síðasta tímabili þegar Víkingur vann Íslandsmeistaratitilinn. Kalmar fór upp úr sænsku B-deildinni og verður í úrvalsdeildinni á komandi tímabili.

Valdimar Þór var spurður út í akvörðunina að hafna sænska liðinu í viðtali hér á Fótbolta.net eftir að Víkingur varð meistari meistaranna eftir 4-0 sigur á Vestra í dag.
„Mér líður vel í Víking, ætla ekki að fara mikið út í það. Er á góðum stað og langar að halda áfram hérna," sagði Valdimar.
Athugasemdir