Fotbolti.net
29.06.12 - 12:30
Magnús Már Einarsson

Yakubu til Kína (Staðfest)

Yakubu til Kína (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nígeríski framherinn Yakubu Aiyegbeni hefur yfirgefið sökkvandi skip Blackburn og gengið í raðir Guangzhou R&F í Kína.

Þessi 29 ára gamli leikmaður skoraði 17 mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en það dugði ekki til að forða Blackburn frá falli.

Yakubu hefur nú staðiðst læknisskoðun hjá Guangzhou og skrifað undir þriggja ára samning við félagið.

,,Þetta er nýtt ævintýri fyrir mig eftir að hafa spilað í Ísrael og á Englandi,\" sagði Yakubu.

,,Samkvæmt fjölmiðlum höfðu mörg félög áhuga á mér en eina félagið sem hafði samband var Guangzhou R&F.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.