Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 29. júní 2020 21:35
Ívan Guðjón Baldursson
Andre Wisdom á spítala með stungusár
Mynd: Getty Images
Andre Wisdom, 27 ára bakvörður Derby County, er staddur á spítala þessa stundina þar sem hlynnt er að honum eftir að hann var stunginn og rændur í Liverpool um helgina.

Wisdom er fæddur í Leeds og spilaði hann með unglingaliði Bradford áður en hann skipti til Liverpool fimmtán ára gamall.

Wisdom spilaði 22 leiki fyrir Liverpool og var lánaður til Derby, WBA, Norwich og RB Salzburg áður en Derby fékk hann endanlega í sínar raðir sumarið 2017.

Wisdom hefur spilað 58 leiki fyrir Derby frá komu sinni til félagsins en hann þótti gífurlega mikið efni á sínum tíma og var mikilvægur hlekkur í U17, U19 og U21 landsliðum Englands.

Ástand Wisdom er stöðugt og er hann ekki í lífshættu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner