Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 29. júní 2020 16:49
Magnús Már Einarsson
Sonur Pochettino framlengir við Tottenham
Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino.
Mynd: Getty Images
Argentínski kantmaðurinn Maurizio Pochettino hefur skrifað undir nýjan samning við Tottenham.

Þessi 19 ára gamli leikmaður var áður með samning sem átti að renna út í dag.

Mauricio Pochettino, faðir Maurizio, var áður stjóri Tottenham en hann var rekinn í nóvember.

Þeir feðgar voru saman á mynd sem Maurizio birti á Instagram í dag og áhugavert var að sjá Mauricio í bol merktum Tottenham.

Sebastiano, annar sonur Mauricio Pochettino, var áður styrktarþjálfari hjá félaginu en hann hætti þegar faðir hans var rekinn í nóvember.

Athugasemdir
banner
banner
banner