Fotbolti.net
29.07.18 - 15:31
Brynjar Ingi Erluson

Arnór Smárason semur við Lilleström (Staðfest)

Arnór Smárason er kominn í norsku úrvalsdeildina

Arnór Smárason er kominn í norsku úrvalsdeildina

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Norska úrvalsdeildarfélagið Lilleström gekk í dag frá kaupum á Arnóri Smárason frá Hammarby í Svíþjóð. Þetta kemur fram á heimasíðu Lilleström.
Arnór, sem er 29 ára gamall, er uppalinn í ÍA, en hélt út til Hollands að spila fyrir Heerenveen þegar hann var aðeins 16 ára. Hann hefur þá spilað fyrir Esbjerg, Helsingborg og Torpedo Moskvu.

Hann samdi við Hammarby árið 2016 en hann fékk fá tækifæri á þessari leiktíð og ákvað því að færa sig yfir til Noregs.

Hann gerði í dag samning við Lilleström út tímabilið en liðið er í þrettánda sæti deildarinnar með 14 stig og vonast til þess að hann hjálpi liðinu í fallbaráttunni.

„Ég vil fá meiri spiltíma og því var Lilleström frábær kostur fyrir mig og ég vonast til þess að hjálpa liðinu í deildinni. Við erum auðvitað líka í bikarnum og því spennandi mánuðir framundan,\" sagði Arnór við heimasíðu Lilleström.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.