29.07.18 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
CSKA Moskva selur lykilmann til Brasilíu (Staðfest)

Vitinho í leik með CSKA Moskvu

Mynd: Getty Images

Vitinho í leik með CSKA Moskvu

Mynd: Getty Images
Brasilíski sóknarmaðurinn Vitinho er kominn til Flamengo í heimalandinu en hann kemur frá CSKA Moskvu í Rússlandi.
Vitinho, sem er 24 ára gamall, hefur leikið í Rússlandi síðustu ár en hann hefur verið lykilmaður í liði CSKA.
CSKA Moskva náði samkomulagi við Flamengo fyrir helgi um kaup á Vitinho en félagið greiðir 10 milljónir evra fyrir hann.
Það fékkst svo staðfest í gær að hann er kominn til Flamengo og gerir fjögurra ára samning.
CSKA hefur misst marga úr sínum röðum í sumar en Aleksandr Golovin fór til Mónakó á dögunum og þá eru þeir Sergey Ignashevich, Vasily Berezutskyi og tvíburabróðir hans Alexey hættir. Þá var Ahmed Musa á láni frá Leicester en óvíst er hvort hann snýr aftur til Rússlands.