29.07.18 - 13:30
Brynjar Ingi Erluson
Pizarro semur við Werder Bremen í fjórða sinn á ferlinum (Staðfest)

Claudio Pizarro í leik með Werder Bremen árið 2016

Mynd: Getty Images

Framherjinn knái, Claudio Pizarro, gerði í dag eins árs samning við þýska félagið Werder Bremen en þetta er í fjórða sinn sem hann semur við félagið á ferlinum.
Pizarro, sem er 39 ára gamall, er frá Perú en hann lék með Köln í efstu deildinni í Þýskalandi á síðasta tímabili.
Hann hefur átt magnaðan feril en hann samdi við Werder Bremen árið 1999 eftir að hafa spilað fyrir Alianza Lima í heimalandinu.
Hann lék með þýska liðinu í tvö ár áður en hann hélt til Bayern München. Hann skoraði 100 mörk í 256 leikjum fyrir Bayern og var fenginn til Chelsea árið 2007.
Hann náði ekki að festa sig í sessi í ensku úrvalsdeildinni og var lánaður aftur til Bremen árið fyrir tímabilið 2008-2009. Hann ákvað í kjölfarið að færa sig alfarið yfir til félagsins eftir lánssamninginn.
Pizarro gerði frábæra hluti fyrir Bremen en ákvað að yfirgefa félagið og samdi aftur við Bayern þar sem hann lék þrjú tímabil áður en hann hélt í þriðja sinn til Bremen. Hann spilaði þar tvö tímabil áður en hann samdi við Köln fyrir síðasta tímabil.
Hann skoraði aðeins eitt mark í sextán leikjum þar en í dag staðfesti Bremen endurkomu hans í fjórða sinn og mun hann klára ferilinn með liðinu en hann gerði eins árs samning.
Ferill Pizarro er magnaður en hann hefur gert 143 mörk í 274 leikjum fyrir Bremen á meðan hann gerði 125 mörk í 327 leikjum fyrir Bayern.