29.07.18 - 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Víðir Þorvarðar kominn aftur í ÍBV (Staðfest)

Víðir í leik með ÍBV. Hann er mættur aftur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Já hann er kominn heim!\" svona hefst fréttatilkynning frá ÍBV í kvöld en þar er tilkynnt um komu Víðis Þorvarðarsonar til félagsins.
Víðir fékk á dögunum samningi sínum rift hjá Þrótti Reykjavík. Víðir samdi við Þrótt fyrir síðasta keppnistímabil og lék 30 leiki fyrir félagið.
Víðir lék með ÍBV frá 2012 til 2015 en hann hefur einnig á ferlinum leikið með KFS, Stjörnunni og Fylki.
„Víðir Þorvarðarson mun klára tímabil 2018 hjá uppeldisfélaginu en hann skrifaði undir samning við ÍBV rétt í þessu. Víðir er 26 ára og spilar hægri kanti,\" segir í tilkynningu ÍBV.
ÍBV sigraði KA áðan og stóð Víðir vaktina á börunum á leiknum. Sannur Eyjapeyji!
ÍBV er í níunda sæti Pepsi-deildarinnar en fyrsti leikur Víðis með ÍBV gæti komið gegn Fylki um verslunarmannahelgina.