Svartfellingurinn Stevan Jovetic skoraði tvö mörk fyrir Herthu Berlín í 4-3 sigri á Liverpool er liðin mættust í æfingaleik í Aachen í kvöld.
Fjórða markið var laglegt. Virgil van Dijk, sem er ný kominn til baka eftir að hafa verið meiddur síðasta árið, kom inná í vörnina og tók sinn tíma að taka við sér.
Jovetic keyrði á hann, tók tvöföld skæri áður en hann skildi Van Dijk eftir í reyknum og skoraði.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Jovetic sending VVD back to Netherlands and Robertson back to Scotland in one move 😂😂😂 pic.twitter.com/nEBPU7gBHU
— Kushveer Singh (@kushveersingh14) July 29, 2021
Athugasemdir