Fotbolti.net
29.09.18 - 15:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Pepsi-deildin: Valur er Íslandsmeistari 2018 (Staðfest)

KR í Evrópukeppni

Valur er Íslandsmeistari annað árið í röð.

Valur er Íslandsmeistari annað árið í röð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur er Íslandsmeistari annað árið í röð. Liðið þurfti að sigra Keflavík í lokaumferðinni í dag til að tryggja sér titilinn en þegar komið var í leikinn var aldrei spurning um það hvernig lokaniðurstaðan yrði. Valur var aldrei að fara að gera neitt annað en að vinna botnlið Keflavíkur.
Einar Karl Ingvarsson kom Val yfir á áttundu mínútu og nokkrum mínútum síðar bætti Haukur Páll Sigurðsson við marki. Aron Kári Aðalsteinsson kom Val í 3-0 með sjálfsmarki á 19. mínútu.

Dion Acoff gerði fjórða markið á 57. mínútu en Keflavík minnkaði muninn undir lokinn. Það breytti litlu sem engu. Lokatölur 4-1 fyrir Val, Íslandsmeistaranna.

Stuðningsmenn Vals sungu, „Íslandsmeistarar, Íslandsmeistarar," á síðustu mínútnum og það er staðreyndin. Valur er Íslandsmeistari annað árið í röð.


Keflavík fellur úr deildinni, Suðurnesjarliðið endar með aðeins fjögur stig. Skelfilegt sumar fyrir Keflvíkinga.

KR náði síðasta Evrópusætinu
Breiðablik endar í öðru sæti. Kópavogsliðið gerði sitt í dag, vann 4-0 sigur á KA á heimavelli. Það var ekki nóg til að vinna Íslandsmeistaratitilinn en það nægir í annað sætið.

Stjarnan tapaði 1-0 fyrir FH, en Garðbæingar enda í þriðja sæti. FH virtist á ákveðnum tímapunkti ætla að enda í fjórða sæti, síðasta Evrópusætinu en annað kom á daginn þar sem KR náði að snúa viðureign sinni gegn Víkingi sér í vil. KR vann 3-2 og nær síðasta Evrópusætinu.

Það verður engin Evrópukeppni hjá FH á næstu leiktíð.


Gunnar Heiðar með þrennu í lokaleiknum
ÍBV nær sínum besta árangri frá 2013, sjötta sætið. ÍBV vann 5-2 sigur á Grindavík í lokaumferðinni. Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem var að spila sinn síðasta leik á knattspyrnuferlinum, skoraði þrennu fyrir ÍBV. Frábær endir hjá honum!




Kristján Guðmundsson mun núna hætta með ÍBV en nýjustu fregir herma að Portúgalinn Pedro Hipolito sé í viðræðum við ÍBV.

Hræðilegur endir hjá Fjölni
Fjölnir mun spila í Inkasso-deildinni á næstu leiktíð en liðið endar mótið á hræðilegan hátt, 7-0 tapi gegn Fylki. Ótrúleg úrslit í Árbænum.

Fylkir endar í áttunda sæti en að lokum var það þannig að Grindavík endaði í tíunda sæti. Víkingur í því níunda. KA endar í sjöunda sæti og ÍBV eins og áður segir í sjötta sæti.

Hér að neðan eru öll úrslitin í lokaumferðinni.

Valur 4 - 0 Keflavík
1-0 Einar Karl Ingvarsson ('8 )
2-0 Haukur Páll Sigurðsson ('14 )
3-0 Aron Kári Aðalsteinsson ('19 , sjálfsmark)
4-0 Dion Jeremy Acoff ('57 )
Lestu nánar um leikinn

Stjarnan 0 - 1 FH
0-1 Brandur Hendriksson Olsen ('5 )
Lestu nánar um leikinn

Víkingur R. 2 - 3 KR
1-0 Rick Ten Voorde ('21 , víti)
1-1 Óskar Örn Hauksson ('24 )
1-2 Atli Sigurjónsson ('52 )
1-3 Halldór Smári Sigurðsson ('61 , sjálfsmark)
2-3 Geoffrey Wynton Mandelano Castillion ('70 )
Lestu nánar um leikinn

Grindavík 2 - 4 ÍBV
1-0 Aron Jóhannsson ('4 )
1-1 Gunnar Heiðar Þorvaldsson ('6 )
1-2 Gunnar Heiðar Þorvaldsson ('10 )
2-2 Jose Enrique Seoane Vergara ('49 )
2-3 Jonathan Ian Franks ('59 )
2-4 Kaj Leo í Bartalsstovu ('82)
Lestu nánar um leikinn

Fylkir 7 - 0 Fjölnir
1-0 Daði Ólafsson ('27 )
2-0 Albert Brynjar Ingason ('38 )
3-0 Hákon Ingi Jónsson ('42 )
4-0 Albert Brynjar Ingason ('66 )
5-0 Jonathan Ricardo Glenn ('74 )
6-0 Jonathan Ricardo Glenn ('81 )
7-0 Albert Brynjar Ingason ('83 )
Rautt spjald:Guðmundur Karl Guðmundsson , Fjölnir ('51)
Lestu nánar um leikinn

Breiðablik 4 - 0 KA
1-0 Thomas Mikkelsen ('5 , víti)
2-0 Willum Þór Willumsson ('28 )
3-0 Willum Þór Willumsson ('35 )
4-0 Thomas Mikkelsen ('67 )
Lestu nánar um leikinn
Pepsi-deildin: Valur er Íslandsmeistari 2018 (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

KR náði Evrópusæti.

KR náði Evrópusæti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Úr leik FH og Stjörnunnar.

Úr leik FH og Stjörnunnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fjölnir tapaði stórt í lokaumferðinni.

Fjölnir tapaði stórt í lokaumferðinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.