Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. nóvember 2020 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Holding í miðjum leik: Traore er byggður eins og hús
Mynd: Getty Images
Wolves lagði Arsenal að velli í ensku úrvalsdeildinni í dag og áttu varnarmenn Arsenal í basli með Adama Traore eins og varnarmenn annarra liða.

Traore er gríðarlega snöggur og sterkur leikmaður og féll hann til jarðar í kapphlaupi við Rob Holding og fékk aukaspyrnu fyrir.

Holding var ekki sáttur með Michael Oliver dómara, sem gaf Holding gult spjald, og kallaði að Traore væri alltof sterkbyggður til að láta sig falla við svona litla snertingu.

„Hann er byggður eins og múrsteinahús (e. brick shithouse), hvernig getur hann dottið svona?" spurði Holding um leið og dómarinn lyfti gula spjaldinu.


Athugasemdir
banner
banner