Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 30. mars 2020 14:08
Magnús Már Einarsson
Tíu aðilar í vinnuhópi um fjármál félaga
Gísli Gíslason varaformaður KSÍ er í nefndinni.
Gísli Gíslason varaformaður KSÍ er í nefndinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á fundi sínum þann 26. mars ræddi stjórn KSÍ fjármál félaga í tengslum við þá stöðu mála sem komin er upp varðandi heimsfaraldur COVID-19, og staðfesti jafnframt skipan vinnuhóps um málið. Formaður KSÍ upplýsti stjórnina um vinnu starfshópsins og næstu skref.

Í fundargerð stjórnar kemur eftirfarandi m.a. fram: „Næsta skref er að greina stöðuna hjá félögunum með samræmdum hætti. Útbúið hefur verið minnisblað fyrir félögin varðandi umsóknir um sértæk úrræði í takti við ný lög (hlutabætur og greiðslur í sóttkví). Úrræðin nýtast félögunum misjafnlega vegna ólíkrar stöðu þeirra. Vinna Deloitte í þessum málum er vönduð og gagnast vel og verður vonandi nýtt til lengri tíma litið. Rætt um framlag ríkisins til íþróttamála. Einnig var rætt um stöðuna hjá félögunum gagnvart yngri flokkum sem einnig er misjöfn á milli félaganna."

Vinnuhóp um fjármál félaga skipa eftirtaldir tíu aðilar:
Guðni Bergsson, formaður KSÍ
Gísli Gíslason, varaformaður KSÍ
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ
Haraldur Haraldsson, stjórn KSÍ/Formaður ÍTF
Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri ÍTF
Marteinn Ægisson, formaður Þróttar Vogum
Arnar Sveinn Geirsson, forseti Leikmannasamtakanna
Birgir Jónasson, stjórn KÞÍ
Jónas Gestur Jónsson, Deloitte
Pétur Steinn Guðmundsson, Deloitte

Á stjórnarfundinum kynnti framkvæmdastjóri KSÍ minnisblað um fjármál KSÍ og mat á fjárhagsáætlun. Einnig kynnti Haraldur Haraldsson formaður ÍTF erindi frá ÍTF þar sem fram koma m.a. tillögur um stuðning frá KSÍ við aðildarfélög sambandsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner