Fotbolti.net
30.03.26 - 13:24
Elvar Geir Magnússon

Isidor gæti byrjað sinn fyrsta leik gegn Íslandi

Wilson Isidor fagnar marki fyrir Sunderland.

Wilson Isidor fagnar marki fyrir Sunderland.

Canon

Mynd: EPA

Eimskip
Ísland leikur vináttulandsleik gegn Haítí klukkan 16:30 á morgun (að íslenskum tíma) en líklegt er að Wilson Isidor, sóknarmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland, muni spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Haítí.

Isidor er 25 ára og fæddist í Frakklandi en fékk nýlega grænt ljós á að spila fyrir Haítí en afi hans er frá eyríkinu.

Isidor lék fyrir yngri landslið Frakkland upp í U20 en sá ekki fram á að geta brotið sér leið inn í ógnarsterkt A-landslið þjóðarinnar.
Arnar um Haítí leikinn: Gerum klárlega breytingar
TENGT EFNI

Arnar um Haítí leikinn: Gerum klárlega breytingar

Isidor lék sinn fyrsta landsleik fyrir Haítí þegar hann kom af bekknum í 1-0 tapi gegn Túnis á laugardaginn en Haítí verður með á HM í sumar.

Hann fór feikilega vel af stað með Sunderland á þessu tímabili og var kominn með fjögur mörk eftir níu umferðir. Hann hefur hinsvegar ekki skorað síðan og mínútunum farið fækkandi.

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni spila fyrir Haítí, á síðasta ári fékk Jean?Ricner Bellegarde, miðjumaður Wolves, keppnisleyfi með þjóðinni en hann fæddist einnig í Frakklandi.

Leikur Íslands og Haítí á morgun verður sögulegur fyrir þær sakir að þjóðirnar hafa aldrei áður og raunar hefur ekkert íslenskt fótboltalandslið áður mætt Haítí. Haítí er í 82. sæti heimslista FIFA, átta sætum neðar en Ísland.

Leikurinn verður spilaður án áhorfenda þar sem miðasala var það dræm að ekki þótti standa undir kostnaði að vera með áhorfendur.


Það var mikið fagnað á Haítí þegar liðið tryggði sér HM sæti.

Það var mikið fagnað á Haítí þegar liðið tryggði sér HM sæti.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.