Íslenska kvennalandsliðið tekur á móti því úkraínska (14.) og enska (18.) á Laugardalsvelli í næsta mánuði. Ísland og Úkraína eru án stiga eftir leiki gegn Englandi og Spáni í fyrstu tveimur umferðum undankeppninnar. Fyrir fram, eftir að dregið var í riðilinn, var ljóst að leikirnir við Úkraínu yrðu mjög mikilvægir.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari landsliðsins, svaraði spurningum um komandi leiki á fréttamannafundi.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari landsliðsins, svaraði spurningum um komandi leiki á fréttamannafundi.
Horfir þú á leikinn gegn Úkraínu sem leik sem þarf að vinnast?
„Auðvitað er ljóst að Úkraínuleikurinn er gríðarlega mikilvægur og ljóst að við þurfum að fá stig út úr báðum leikjunum á móti Úkraínu, hvort sem það eru eitt eða þrjú. Við þurfum fleiri stig heldur en Úkraína til að verða væntanlega fyrir ofan þær í riðlinum," sagði Steini. Í viðtali við RÚV var hann sammála því að leikurinn gegn Úkraínu væri úrslitaleikur.
Ísland er í 17. sæti á heimslista FIFA og Úkraína situr í 35. sæti listans. Spánn er í efsta sæti og England í fjórða sæti.
Fannst liðið geta spilað betur gegn Englendingum úti
En hvernig horfir þú á England á heimavelli, eru möguleikar þar?
„Við teljum okkur alltaf eiga möguleika á móti öllum liðum, förum í alla leiki til að gera allt sem við getum til að gera allt sem við getum til að vinna. Við reynum að setja þetta upp þannig að við búum til einhvers konar hugmynd um hvað sé hægt að gera og hvernig er hægt að vinna leikina. Við erum ekkert að fara breyta því á móti Englandi (Evrópumeisturunum)."
„Mér finnst við geta lagað ýmsa hluti úr leiknum á Englandi og ýmis tækifæri sem maður sá í þeim leik sem við vorum kannski ekki alveg að nýta okkur. Það voru ýmsir möguleikar í stöðunni sem mér fannst við geta gert betur í."
Vonar að markatalan muni ekki skipta máli
Úkraína tapaði stærra samanlagt gegn Englandi og Spáni en Ísland í fyrstu tveimur leikjunum. Markatalan, mun hún skipta einhverju máli?
„Vonandi kemur hún ekki til með að skipta máli, vonandi vinnum við bara leikina og þurfum því ekki að spá í það. En hún getur alveg skipt máli."
Stöðuna í riðlinum er hægt að sjá neðst í fréttinni.
Ertu þá kannski feginn að sleppa bara með 2, og 3-0 tap úr síðasta verkefni, sem hefðu getað verið stærri?
„Feginn og ekki feginn, við töpuðum leikjum og maður er ekkert sáttur eða glaður með það. En vissulega fengum við færi á okkur, það er ekkert hægt að fela sig á bakvið það. Þetta var niðurstaðan, nú þurfum við að horfa fram í næstu leiki. Við getum ekki verið að horfa í baksýnisspegilinn, þurfum að undirbúa okkur undir Úkraínu og svo nokkrum dögum seinna er leikur á móti Englandi. Síðustu dagar og vikur hafa farið í að undirbúa okkur undir leikinn gegn Úkraínu."
Spiluðu síðast á vellinum í júní
Ísland spilar á Laugardalsvelli í næsta mánuði í fyrsta sinn frá síðasta sumri. Færa þurfti leikinn gegn Norður-Írlandi síðasta haust út af snjókomu.
„Ég er mjög spenntur, held það séu 10 mánuðir frá því að við spiluðum hérna síðast. Vonandi verður völlurinn í ágætis standi og aðstæður góðar."
Ekki verra ef það yrði gjóla
Þú vilt ekki verra veður svo að t.d. Englendingum líði illa?
„Nei nei, það má alveg vera gjóla, ég myndi ekkert hata það. En það bara kemur í ljós. Englendingar eru vanir að spila í kulda og svoleiðis, en kannski minna vanir einhverju roki. Svo spila allir leikmenn okkar erlendis og muna varla eftir því sumar hverjar hvernig er að spila á Íslandi nema í þessum landsleikjum sem þær hafa spilað."
Verið hrein og klár hörmung
Er hybrid-grasið í toppstandi, höndlar það alveg vetrarþungan?
„Já, ég held að völlurinn sé alveg ágætur. Auðvitað hefur þessi blessaði marsmánuður verið hrein og klár hörmung og ég held það hafi ekki hjálpað vellinum. Ég fór inn á völlinn fyrir um þremur vikum og þá voru einstaka græn strá á honum og leit alveg allt í lagi út þannig séð miðað við að vera í byrjun mars. En auðvitað er tíðin að undanförnu ekki að hjálpa varðandi sprettu. Völlurinn verður frostlaus, það er alveg ljóst," sagði Steini.
Steini sagði á fundinum að hann hefði ekkert rætt við Öglu Maríu Albertsdóttur um mögulega þátttöku í verkefninu. Hún gaf ekki kost á sér í síðasta verkefni sökum vinnu.
Þurfum að trúa - Leyfa Úkraínu að vera með boltann?
Eftir fundinn ræddi Steini svo við mbl og Fótbolta.net. Viðtalið má nálgast í heildinni hér neðst.
„Ég vil fá nokkur stig, allavega einn sigur og helst tvo. Markmiðið er að byrja (verkefnið) vel á móti Úkraínu og vinna þann leik. Ég er bjartsýnn, hef enga ástæðu til annars, vonandi höfum við dregið lærdóm af því í síðustu tveimur leikjum hvernig við þurfum að vera, þurfum að trúa. Við vitum að þetta verður hörkuleikur gegn Úkraínu, þetta er lið sem er erfitt að spila á móti. Þær vilja mikið vera með boltann og vilja vera beinskeyttar. Við þurfum að vera tilbúin í allt. Auðvitað breytist alltaf eitthvað, en það þurfa alltaf ákveðin grunnatriði að vera til staðar, eins og skipulag."
„Ég geri ráð fyrir því að verðum meira með boltann en Úkraínu þó að það sé í sjálfu sér ekkert markmiðið. Það er spurning, af því þær vilja ekki mikið vera með boltann, að leyfa þeim að vera meira með hann til að taka ákveðnar tennur úr leik þeirra."
Landslið kvenna - Undankeppni HM, Riðill 3
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. England | 2 | 2 | 0 | 0 | 8 - 1 | +7 | 6 |
| 2. Spánn | 2 | 2 | 0 | 0 | 6 - 1 | +5 | 6 |
| 3. Ísland | 2 | 0 | 2 | 0 | 0 - 5 | -5 | 0 |
| 4. Úkraína | 2 | 0 | 2 | 0 | 2 - 9 | -7 | 0 |
Athugasemdir


